Deejay Kira og Zurgbassi í no request

Bloggað 25/08 '10

Það verður massa þáttur þessa vikuna þegar við fáum að heyra sett frá Deejay Kira og einnig mæta Zurgbassa drengirnir í stúdió Voice.

Við byrjum þáttinn á klukkutíma setti frá hinum breska Deejay Kira, hann hefur verið yfir 15 ára dansgeiranum bæði sem klúbba stjórnandi og plötusnúður, nýlega fór hann einnig að semja og útsetja danstónlist, no request kynnist honum á facebook :) og verður spennandi að heyra hvað hann er að spila þessa dagana.

hægt er að lesa meira um kappann á hér.

Í seinni hluta þáttarins koma Zurgbassa drengirnir í heimsókn og ætla að spila fyrir okkur restina af þættinum, þeir eru nýbúnir að spila á flottu kvöldi á mennigarnótt í borginni og ætla að halda partyinu áfram í no request.

Um helgina er það svo meistari Leibbi á 101 Akureyri á laugardag.

Deejay Kira og Zurgbassi í no request kl 21:00 á fimmtudaginn :)

kv no request

Bensol í no request upptaka frá Space ( Ibiza )

Bloggað 17/08 '10

Við fáum að heyra settið sem að BenSol tók á space á Ibiza þann 18 júlí, en hann vann einmitt keppnina We Love…Space DJ competition www.datatransmission.co.uk og vann þá ferð til að spila á space.  Bensól er eini íslendingurinn sem við vitum um sem spilað hefur á Space og verður snilld að fá að heyra settið sem hann tók þarna.

Bensol er engin nýliði í þessum bransa hefur verið lengi að en stökk aftur fram í sviðsljósið fyrir nokkrum árum og spilaði með Hugarástands mönnum þegar þeir voru að halda upp á afmælið sitt .

Bensol í no request á fimmtudaginn kl 21:00 á voice 987 og www.voice.is

svo verður hann Dj Sveinar á 101 á Laugardagskvöldinu:)

kv no request

Bjarni í no request á fimmtudaginn.

Bloggað 11/08 '10

Það verður Bjarni G sem að spilar fyrir hlustendur no request þessa vikuna, Bjarni kom fyrst í heimsókn til okkar í desember í fyrra en hafði fyrir það vakið athygli fyrir flott sett í einkapartíum ásamt Davið félaga sínum.

það verður spennandi að heyra hvað hann ætlar að bjóða upp á þessu setti og aldrei að vita nema að hann spili eitthvað eftir sjálfan sig en það hefur hann gert í fyrri heimsóknum sínum í þáttinn.

Bjarni G í no request á fimmtudaginn kl 21:00 á voice 987 og www.voice.is

kv no request

Stebbi í no request

Bloggað 3/08 '10

Það verður flottur þáttur þessa vikuna þegar Stebbi mætir í heimsókn til okkar.

Stebbi hefur verið rólegur í spilamennskunni undanfarið en hefur þó eitthvað spilað á Kaffi Akureyri og 101.

Stebbi kom í fyrsta sinn í no request aðeins 15 ára gamall og spilaði einnig á no request kvöld 15 ára í KA heimilinu þar sem hann hitaði upp fyrir Leibba , í desember 2007 þegar hann spilaði í annað sinn í þættinum átti hann eitt af bestu settum sem að spiluð hafa verið í no request.

það verður þvi spennandi að heyra hvað Stebbi er að hlusta á þessa dagana.

Stebbi í no request á fimmtudaginn kl 21:00 á Voice 987 og www.voice.is

kv no request.

Desyn,Hreggó & Maggi í næsta no request

Bloggað 28/07 '10

Það verður extra langur þáttur hjá okkur á Fimmtudaginn í tilefni Verslunarmanna helgarinnar.

Við fáum að heyra sett frá honum Desyn Masiello sem við fengum sent frá umboðsmanni hanns svo ættla þeir Hreggó og Maggi að enda þáttinn.

Svo er síðasti þáttur með honum Aj Caputo komin inn á download síðuna okkar og getiði nálgast það hér

En þið sem ættlið að vera á Akureyri um helgina þá eru allar upplýsingar um hátíðina hér http://einmedollu.is/

Fjörið byrjar eins og alltaf kl 21:00 á voice 987 og á netinu á voice.is.

kv no request


Keyrt á WordPress | Hannað og uppsett af Vefhetjunni